13 – Kastalaklukkan

13. kafli – Kastalaklukkan

Ár: 1206
Vísindamaður: Ismail Al-Jazari (1136-1206)
Vísindagrein: Vélaverkfræði
Staður: Artuklu-höllin í Austur-Anatólíu

Unglingarnir ferðast aftur á upphafsreit, til ársins 1206, þar sem þau skila Al-Jazari stjörnuskífunni, uppfullri af sannindamerkjum sem urðu til við uppgötvanir vísindafólksins. Gunnar og Leyla aðstoða Al-Jazari við að koma meistaraverki hans, kastalaklukkunni, í gang.

Kastalaklukkan

Meistaraverk Al-Jazaris og ein af  þekktustu uppfinningum hans. Klukkan var tæplega þrír og hálfur metri á hæð, hún sýndi tímann en einnig gang sólar og tungls og stjörnumerkjanna. Það var meira að segja hægt að stilla lengd dags og nætur eftir árstíma. Á hverjum klukkutíma birtust litlar sjálfvirknivélar og léku á hljóðfæri eða dönsuðu. Líkt og fílaklukkan gekk kastalaklukkan fyrir vatnsafli. Vatnið myndaði þrýsting sem skapaði mótstöðu og hreyfiafl þannig að hlutar gangverksins tóku að hreyfa hver við öðrum.

Kveikjur

Nokkur myndbönd sem sýna kastalaklukkuna:

Al Jazaris Castle Clock (2:11)
https://www.youtube.com/watch?v=83JHHhlOgxw

Al-Jazari and the Castle Clock (5:41)
https://www.youtube.com/watch?v=qz7soHvy-Pw

Castle Clock (0:32)
https://vimeo.com/84078783

Umræðupunktar

  • Klukkugerð var mikil listgrein, bæði verkfræðileg og listræn. Enn í dag þykja klukkur hin mestu prýði. Þekkið þið dæmi um klukkur eða úr sem þykja hafa fagurfræðilegt gildi? Svör geta t.d. verið ýmsar kirkjuklukkur, gauksklukkur og jafnvel einhver merkjavara úra.
  • Hvers vegna var mikilvægt á öldum áður að hafa klukkur á almannafæri (svo sem klukkuturna)?
  • Hægt var að endurforrita kastalaklukkuna svo hún sýndi rétta stöðu sólar eftir mislöngum dögum. Væri hægt að kalla þessa klukku tölvu?

Verkefni

Módel af kastalaklukkunni
Búa til módel af kastalaklukkunni með áherslu á framhliðina en ekki virknina. Hliðarnar geta verið úr pappa eða tréplötum og litlu persónurnar úr leir. Einnig væri hægt að byggja hana úr LEGO. Hér er mynd sem hægt er að nota sem fyrirmynd: http://www.jazarimachines.com/en/wp-content/uploads/2017/01/1jpg512670727.jpg

Ítarefni

Myndband af klukkuturninum í Prag
Í mörgum borgum eru glæsilegar klukkur í miðbænum. Hér má sjá myndband af einni af þeim glæsilegustu, klukkuturninum í Prag, Tékklandi. Hann er frá 15. öld og svipar að mörgu leyti til kastalaklukkunnar: https://www.youtube.com/watch?v=NebyX6-GUTM